Björgvin Valur - Bæjarslúðrið

- homo evropus

Innlendir fréttamiðlar og gagnlegir tenglar
Erlendir fréttamiðlar
Pólitík
Gáttir og veitur
Bloggdagar
««Mar 2010»»
SMTWTFS
  12
3
4
5
6
7
89
10
11
12
13
14
1516
17
181920
21222324252627
28293031
Ferskur andblær og bjartsýni
Published: 9:10 AM GMT, 15-10-2009

Viðtalið við Jón Ágúst Þorsteinsson, forstjóra Marorku, í þættinum Vítt og breitt á Rás 1 í morgun, var sem ferskur andblær inn í umræðuna.  Maðurinn er fullur bjartsýni fyrir hönd þjóðarinnir og segist ekki verða var við andúð í okkar garð í miklum samskiptum sínum við útlendinga.

Hann segir þá ekki blanda bankahruninu samanvið allt annað á Íslandi.

Marorka er fyrirtæki sem hannar og framleiðir búnað til að draga úr orkunotkun skipa og hefur sett alþjóðlega staðla hvað slíkt varðar.  Fyrirtækið hlaut Norrænu umhverfisverðlaunin í fyrra.

Ég gat ekki varist þeirri hugsun að þarna værum við að sýsla við eitthvað sem léti okkur vel, sjó og skip.  Man ekki betur en að það hafi verið Marel og Póllinn og fleiri slík fyrirtæki sem umbyltu fiskvinnslu í heiminum með tækninýungum.  Hampiðjan var og er kannski enn, leiðandi í framleiðslu veiðafæra og gott ef sjávarútvegssýningarnar voru ekki fullar af íslenskum tækninýjungum; hugviti og handverki.

En svo ætluðum við að verða alþjóðleg fjármálamiðstöð. 

Viðtalið við Jón Ágúst er að finna hérna; þið verið að færa stikuna fram um svona þrjá fjórðu til að finna viðtalið ef þið hafið ekki tíma til að hlusta á allan þáttinn.

Dreifið á Facebook

Segðu (0) . Category: Samfélag

Athugasemdir (0)

Var það eitthvað sérstakt?
Varðandi
Af heimaslóðum
Rúnturinn
Bátar og skip
Eldri færslur
Fornleifar
Links
Template by

Free Blog-City Templates

BLOGGER